Hráefni:
- 2 msk olía
- 2 þurrkaðir chilli
- 1 laukur, skorinn gróft
- 6-7 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 msk rifið engifer
- 2 msk sojasósa
- 2 msk hunang
- 1/8 tsk kanill
- 1/8 tsk negull
- 1/8 tsk cayenna pipar
- 500 gr úrbeinuð kjúklingalæri skorin í bita
- 1.5 msk fiskisósa
- Salt & pipar eftir smekk
- saxaður vorlaukur til skrauts
Aðferð:
1. Hitið olíu á pönnu og steikið þurrkað chilli ásamt lauknum. Þegar laukurinn er farinn að mýkjast fer hvítlaukur, engifer, hunang, sojasósa, kanill, negull og cayenne pipar á pönnuna og öllu blandað vel saman og steikið í 1-2 mín.
2. Bætið næst kjúklingnum á pönnuna og steikið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Kryddið réttinn til með fiskisósu, salti og pipar. Berið fram með hrísgrjónum og söxuðum vorlauk.