Hráefni:
- Sjávarsalt
- 1 búnt fersk basilika
- 1 pakkning pasta að eigin vali
- 1 hvítlauksgeiri rifinn niður
- svartur pipar
- 1 dl ólívuolía
- 1 sítróna, börkur+safi
- 2 dl rifinn parmesanostur
- 1 dl saxaðar valhnetur
Aðferð:
1. Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.
2. Á meðan pastað sýður setjum við basiliku, hvítlauk, 1/2 dl ólívuolíu,nokkrar valhnetur, 1 dl parmesan og salt/pipar í matvinnsluvél eða maukum vel með töfrasprota þar til úr verður silkimjúkt pestó.
3. Sigtið allt vatn frá soðna pastanu og setjið pastað í skál . Hrærið pestóið saman við ásamt 2 msk sítrónusafa. Kryddið til með salti og pipar.
4. Skammtið á diska og toppið með rifnum sítrónuberki og rifnum parmesan. Dreifðið síðast söxuðum valhnetum yfir ásamt svörtum pipar.