Hráefni:
- 1 msk ólívuolía
- 1 pakki pasta að eigin vali
- 1 laukur, saxaður smátt
- 500 gr ítölsk pylsa (fæst í kjötborðum, t.d. í Pylsumeistaranum)
- 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 dós saxaðir tómatar
- 1 dós tómatsósa
- 1 msk tómatpúrra
- 1/2 tsk þurrkuð basilika
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk chilliflögur
- 1/4 tsk svartur pipar
- 1 1/2 dl rjómi
- 1 1/2 dl rifinn parmesan
Aðferð:
1. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk þar til hann fer að mýkjast. Setjið þá pylsurnar á pönnuna og brjótið niður með sleif á meðan þær steikjast. Þegar þetta er farið að brúnast örlítið þá fer hvítlaukurinn á pönnuna og þetta steikt áfram í 1 mín. Hellið allri umfram fitu í burtu.
2. Bætið tómötum, tómatsósu, tómat púrru, basiliku, salti, chilliflögum og pipar á pönnuna og leyfið þessu að malla í um 15 mín.
3. Á meðan er pastað soðið eftir leibeiningum á pakkningu. Sigið næst vatnið frá og setjið pastað í stóra skál.
4. Hellið rjóma út á pönnuna og leyfið þessu að malla áfram í 5 mín. Lækkið þá hitann og hrærið parmesan ostinn saman við.
5. Hellið sósunni yfir pastað og blandið þessu vel saman. Berið fram strax með rifnum parmesan og extra svörtum pipar.