Veitingarstaður Perlunnar hefur lengi verið talinn
með flottari veitingahúsum Reykjavíkur og fengu fulltrúar SKE það staðfest nýverið.
Eins og flestir vita er hann staðsettur á efstu hæð Perlunnar og snýr
viðskiptavinum í hring til þeir geti notið frábærs útsýnis á meðan
máltíðinni stendur. Ekki var annað hægt en að fá sér þriggja rétta
matseðilinn sem samanstendur af rjómalagaðri humarsúpu í forrétt með
steiktum humarhölum; nautalund með laukkremi, kartöfluflani, svínasíðu
og Bourguinon sósu í aðalrétt; og að lokum súkkulaði mús með kókos,
hvítu súkkulaði, möndlukexi og bláberjasorbetí eftirrétt Við hjá SKE
löbbuðum pakksödd út með bros á vör.