Hráefni:
- 1 pizza deig
- 1 dl rjómi
- 1.5 msk smjör
- 2 tsk rjómaostur
- 2 msk rifinn parmesan
- hvítlaukskrydd
- 5 dl rifinn mozzarella
- 2 dl eldaður kjúklingur skorinn í bita
- 2 dl saxað spínat
- eldað beikon, vel stökkt og skorið í bita, (má sleppa en mæli með)
Aðferð:
1. Byrjum á að gera Alfredo sósu. Þá setjum við smjör, rjóma og rjómaost í lítinn pott og hrærum vel. Þegar suðan kemur upp leyfum við þessu að malla í um 1 mín. Bætum þá parmesan og hvítlaukskryddi og leyfum þessu að malla á lágum hita í um 10 mín.
2. Deigið er næst flatt út og toppað með alfredo sósunni, mozzarella, spínati og beikoni.
3. Bakið í um 8-10 mín á 200 gráðum.