Hráefni:
- 500 gr rækjur
- 6-8 pylsubrauð, smurð með smjöri og létt ristuð í ofni
- salt og pipar
Sósan:
- 5 msk majónes
- safinn úr 1/4 sítrónu
- 1-2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- sjávarsalt og pipar
- saxaður graslaukur (má sleppa)
- smjör til steikingar
Aðferð:
1. Steikið rækurnar létt á pönnu uppúr smjöri og kryddið til með salti og pipar. Hitið pylsubrauðin í ofni.
2. Hrærið vel saman öll hráefnin í sósuna.
3. Blandið rækjunum saman við sósuna og blandið vel. Setjið í pylsubrauðin og berið fram strax . Hér má leika sér með sín uppáhaldshráefni og bæta á pylsubrauðin, eins og tómata, kál eða hvað sem er.