Auglýsing

Ristað hnetumix með chilli og rósmarín

Hráefni:

  •  300 gr hnetur að eigin vali ( t.d. kasjú, pekan og möndlur)
  •  2 msk ólívuolía
  •  2 msk ferskt saxað rósmarín
  •  1 tsk cumin
  •  1/4 tsk chilli duft
  •  1 msk sykur
  •  1 tsk sjávarsalt
  •  1/2 tsk svartur pipar

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 150 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Setjið hneturnar í stóra skál. Hitið olíu á pönnu og steikið rósamarín í um 1mín. Takið þá pönnuna af hellunni og hrærið cumin og chilli duft út á pönnuna. Hellið þessu næst yfir hneturnar og blandið vel saman.

3. Blandið sykri, salti og pipar saman við og hrærið vel saman. Hellið hnetunum á ofnplötuna og bakið í um 15 mín. Gott er að hræra í þessu 1 sinni á eldunartímanum. Kælið. Þetta geymist í lofþéttum umbúðum í allt að 2 vikur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing