Hráefni:
- 6 gulrætur, skornar í bita
- 1 brokkolí höfuð skorið í bita
- 1 1/2 tsk ítalskt krydd
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 1/2 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk laukduft
- 1/4 tsk svartur pipar
- 2 msk ólívuolía
- 3 msk rifinn parmesan
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Dreifið gulrótar og brokkolíbitunum á ofnplötuna ásamt ólívuolíunni. Hrærið kryddin saman í skál og dreifið blöndunni næst yfir grænmetið. Hristið þetta vel saman.
3. Bakið í 20 mín eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og farið að gyllast aðeins. Takið úr ofninum, dreifið parmesan yfir og berið fram strax.