Hráefni:
- 700 gr kjúklingabringur
- 1 Egg
- 1 msk vatn
- 1 tsk rifinn hvítlaukur
- 1/2 tsk Salt
- 1/2 tsk svartur pipar
- 4-5 dl rifinn parmesan
- 4 msk smjör
- 2 msk ólívuolía
Aðferð:
1. Skerið hverja kjúklingabringu þvert í sundur, svo ein verði að tveim.
2. Hrærið egg og vatn saman í skál. Bætið hvítlauk, salti og pipar saman við og hræið vel saman.
3. Setjið rifinn parmesan í aðra skál. Dýfið næst hverjum og einum kjúklingabita í eggjablönduna og næst í parmesan ostinn. Þrýstið bringunum vel í ostinn svo hann festist vel á.
4. Hitið smjör og ólívuolíu á pönnu. Steikið kjúklinginn þar til hann er orðinn fallega gyllltur og eldaður í gegn. Best er að hafa ekki of marga kjúklingabita á pönnunni í einu, heldur gera þetta í 2 skömmtum. Berið fram með meðlæti að eigin vali.