Hráefni:
-
- 4 msk sesamolía
- 1 1/2 dl panko rasp
- 1/2 dl sesamfræ
- rauðar chilliflögur eftir smekk
- 2 msk saxaður vorlaukur
- 1 dl sojasósa
- 1/2 dl hunang
- 3 msk hrísgrjónaedik
- 2 gúrkur, skornar í þunnar sneiðar
- 500 gr kjúklingabringur eða beinlaus kjúklingalæri skorið í bita
- 2 tsk maíssterkja
- 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- Svartur pipar eftir smekk
- 2 cm bútur engifer, rifið niður
- 2 rauðar paprikur, skornar í sneiðar
Aðferð:
1. Sesam „crumble“: Hitið 1 msk sesamolíu á pönnu ásamt panko rasp, sesamfræjum og chilli flögum þar til þetta fer að verða stökkt og tekur á sig fallega gylltan lit. Kryddið með salti og leggið til hliðar á disk.
2. Sósa: Blandið saman sojasósu, hunangi, hrísgrjónaediki og 1 msk af sesamolíu. Blandið næst 1/2 dl af sósunni saman við gúrkurnar og blandið vel saman. Kryddið þetta til með rauðum chilliflögum og leggið til hliðar.
3. Takið meðalstóra skál og setjið kjúklingabitana í skálina ásamt maíssterkju og svörtum pipar.
4. Hitið 2 msk sesamolíu á pönnunni og steikið kjúklinginn þar til hann fer að brúnast, eða í um 5 mín. Bætið paprikunni á pönnuna ásamt hvítlauk og engifer. Steikið áfram í 2-3 mín. Hellið sósunni saman við og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla þar til sósan fer að þykkna, eða í um 5 mín.
Berið fram með hrísgrjónum og toppið með sesam „crumble“ og gúrkusneiðunum.