Þessi réttur er tilvalinn ef þú átt afgangskjúkling frá kvöldinu áður.
Hráefni:
8 dl eldaður kjúklingur rifinn niður
4 dl rifinn cheddar ostur
2 msk ferskt kóríander saxað
BBQ sósa
4-6 eldaðar og stökkar beikonsneiðar, skornar í bita
c. a. 8 hveiti tortillur
Aðferð:
1. Takið stóra skál og blandið vel saman kjúkling, osti, kóríander, beikoni og BBQ sósu. Dreifið þessu jafnt á 8 tortillur og lokið þeim eins vel og þið getið.
2. Hitið pönnu og steikið vefjurnar á báðum hliðum, c.a. 1-2 mín á hvorri hlið, eða þar til þær eru orðnar gylltar og stökkar. Gott er að bera þær fram með guacamole og salati. Njótið!