Hráefni fyrir kjúklinginn:
- 500 gr kjúklingabringur skornar í bita
- 2 dl buttermilk (mjólk + sítrónusafi)
- 5 dl kornflakes, muldar fínt
- 2 msk hveiti
- 2 msk cajun krydd
- 2 dl cheddar ostur, mjög fínt rifinn niður
- svartur pipar
- ólívuolía, til penslunar
Hráefni fyrir hunangs-sinneps sósu:
- 1/2 dl sýrður rjómi eða hrein grísk jógúrt
- 1/2 dl dijon sinnep
- 1/2 dl hunang
- 2 msk ólívuolía
- safinn af 1/2 sítrónu
- 1 msk cajun krydd
- 1/4 tsk cayenne pipar
- sjávarsalt og svartur pipar
Aðferð:
1. Setjið kjúklingabitana í poka með sítrónu-mjólkinni, lokið pokanum og hristið vel saman. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setjið kornflakes, hveiti, cajun krydd, cheddarost, pipar saman í skál og blandið vel saman.
3. Takið einn kjúklingabita í einu úr pokanum og leggið í kornflakes-blönduna, þrýstið bitanum vel í á öllum hliðum. Leggið kjúklinginn næst á ofnplötuna. Þegar allir bitarnir eru komnir á ofnplötuna þá eru þeir penslaðir létt með ólívuolíu. Bakið þá í um 15-20 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
4. Á meðan blandið þið öllum hráefnum fyrir sósuna saman og hrærið vel saman. Berið fram strax!