- 450 gr rósakál, snyrt og skorið í tvennt
- 3 msk ólívuolía
- 1/2 tsk sjávarsalt og 1/2 tsk svartur pipar
- 1 tsk ítalskt krydd
- 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 1/2 dl rifinn parmesan
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setjið rósakálið í stóra skál ásamt ólívuolíu, ítölsku kryddi, hvítlauk, parmesan, salti og pipar. Blandið þessu vel saman.
3. Dreifið úr rósakálinu á ofnplötuna og bakið í 25-30 mín. Berið fram strax.