Þessi súpa er fullkomin núna þegar fer að hausta, stútfull af hvítlauk, engifer, turmeric og öðrum dásemdum.
Hráefni:
- 1 stórt blómkálshöfuð
- 6 hvítlauksgeirar
- 6 msk extra virgin ólívuolía
- 1 3/4 tsk sjávarsalt
- 1 stór laukur
- 1 gulrót
- 1 1/2 líter grænmetissoð
- 1 1/2 tsk cumin
- 1 1/2 tsk kóríander
- 1 tsk engifer
- 1 tsk turmeric
- 1/4 tsk svartur pipar
- vorlaukur til skrauts
- Paprikukrydd til skrauts
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið bökunarpappír á ofnplötu. Skerið blómkálið í hæfilega bita og afhýðið hvítlauksgeirana, setjið þetta síðan í skál með 3 msk af ólívuolíu 1 tsk af sjávarsalti. Blandið vel og dreifið þessu síðan á ofnplötuna. Þetta fer inn í ofn í 30-35 mín, þar til þetta er orðið vel bakað og farið að gyllast aðeins.
2. Á meðan blómkálið er í ofninum þá takið þið góðan pott og steikið niðurskornar gulrætur og lauk í 2 msk af ólívuolíu í um 5 mín. Bætið grænmetissoðinu í pottinn ásamt cumin, kóríander, engifer, hvítlauk og svörtum pipar. Náið upp suðu í pottinum og sjóðið í um 15 mín.
3. Þegar blómkálið er komið úr ofninum þá takið þið til hliðar aðeins af því ( 1-2 dl ) sem þið sem “topping” á súpuna á eftir. Hellið síðan blómkálinu sem er eftir og hvítlauknum af plötunni ofan í pottinn. Má bæta við 1-2 dl af grænmetissoði, 1 msk ólívuolíu og 3/4 tsk salti. Síðan maukið þið þetta allt saman með töfrasprota þar til þetta verður silkimjúkt.
4. Skammtið súpunni í skálar og toppið með blómkálinu sem þið tókuð til hliðar, söxuðum vorlauk, ólívuolíu og smá paprikudufti.