Hráefni:
- 1 kg litlar kartöflur
- 3 hvítlauksgeirar
- sjávarsalt og svarturpipar
- 1 dl cashew hnetur ( gott er að láta þær liggja í vatni í góða stund áður en þær eru notaðar)
- 1 msk grófkorna sinnep
- 1/2 -1 dl ólívuolía
- 2 dl fersk basilka söxuð niður
- 1/2 dl ferskt dill
- 2 graslaukar, saxaðir niður
- rauðar chilli flögur
- safinn af 1/2 sítrónu
Aðferð:
1. Sjóðið kartöflurnar í salt-vatni þar til þær eru rétt svo eldaðar í gegn.
2. Setjið hvítlauk, cashew hnetur, sinnep og ólívuolíu í matvinnsluvél ( eða maukið með töfrasprota ) þar til blandan verður silkumjúk, bætið við örlitlu vatni ef þarf.
3. Skerið kartöflurnar í tvennt og setjið þær í stóra skál. Blandið tilbúnu cashew-blöndunni, basiliku, dilli, graslauk og sítrónusafa saman við kartöflurnar og blandið vel saman. Kryddið til með salti, pipar og chilli flögum.