Hráefni:
3 msk chia fræ
2 dl möndlumjólk
nokkrir dropar af stevíu eða annarri sætu
1 tsk hnetusmjör
1 msk rjómi
Hindber eða jarðaber
kókosflögur
sítróna
Aðferð:
1. Hræra saman chia fræjum, möndlumjólk og rjóma í skál eða glas. Gott er að setja 3 dropa af stevíu saman við eða örlítið af sýrópinu frá good good. .
2. Láta þetta standa í 15-30 mín.
3. Þegar grauturinn er búinn að standa í góða stund og byrjaður að þykkna setur maður berin, hnetusmjörið og kókosflögurnar yfir grautinn..
4. Það er mjög gott að rífa aðeins innan úr sítrónu og setja nokkra bita saman við en má alveg sleppa (mæli með því að prufa það).