Auglýsing

10 Disney teiknimyndir sem er verið að ENDURGERA sem leiknar myndir! – Skemmtilegar pælingar!

Ofurhetjumyndir eru búnar að eiga Hollywood síðustu ár. En nú er eins og leiknar endurgerðar teiknimyndir séu að taka við. Hér eru nokkrar Disney myndir sem er verið að fara endurgera.

1. Aladdin

Guy Ritchie sem leikstýrði Sherlock Holmes myndunum er líklegast að fara endurgera Aladdin. Það verður spennandi að sjá hvernig þessi klassík á eftir að koma út.

2. Lion King

Lion King er mögulega stærsta teiknimynd sem hefur verið gerð. Allir þekkja söguna um Simba og nú er verið að fara endurgera þessa mynd eins og var gert við Jungle Book. Við bara vonum það besta.

Matthew Broderick, Nathan Lane, and Ernie Sabella in The Lion King (1994)

3. Mulan

Handritshöfundar Jurassic World og Avatar eru núna að vinna í því að gera leikna Mulan mynd. Það verður gaman að sjá þessa frábæru sögu í þessum nýja búning.

Eddie Murphy, Ming-Na Wen, and Lea Salonga in Mulan (1998)

4. Litla Hafmeyjan

Flestir hafa séð teiknimyndina um litlu hafmeyjuna. Verið er að vinna í handriti fyrir hafmeyjuna og það verður örugglega slegist um þetta hlutverk.

Jason Marin in The Little Mermaid (1989)

5. Grimmhildur

Örugglega einhverjir muna eftir vondu konunni í 101 dalmatíuhundum. Nú er verið að fara gera leikna mynd um hana og það er hún Emma Stone sem á að fara með þetta skemmtilega hlutverk.

101 Dalmatians (1961)

6. Dúmbó

Tim Burton hefur ákveðið að endurgera söguna um fílinn sem gat flogið á eyrunum. Leikarar í myndinni verða Eva Green, Danny DeVito og Collin Farrell.

Dumbo (1941)

7. Pétur Pan

Þó það sé búið að gera nokkrar útgáfur um strákinn sem vildi ekki fullorðnast þá er samt að koma ný svoleiðis mynd. Fólk fær ekki nóg af Pétri og vinum hans.

Peter Pan (1953)

8. Skellibjalla

Eins og ég sagði þá fær fólk ekki nóg af Pétri og vinum hans. Það er einnig verið að gera mynd um Skellibjöllu sem er litli álfurinn sem flýgur alltaf með Pétri Pan. Reese Witherspoon mun fara með þetta hlutverk.

Peter Pan (1953)

9. Gosi

Myndin sem framleiðendur í Hollywood eru að slást um er Gosi. Ekki er staðfest hver mun gera myndina um litla spítustrákinn en alla vegana þrír framleiðendur eru að berjast um hana.

Dickie Jones in Pinocchio (1940)

10. Bangsímon

Myndin um Bangsímon mun koma út á þessu ári og leikkona Margot Robbie fer með hlutverk í myndinni. Það verður spennandi að sjá hvernig þessi heppnast.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing