Það verður ótrúleg grín-innrás frá Kanada á Hard Rock á föstudaginn 4. ágúst næstkomandi.
Um er að ræða nokkra þaulvana kanadíska uppistandara sem munu gera allt tryllt í kjallaranum.
Erica Sigurdson er þekkt á alþjóðavísu – og vann The Canadian Comedy Awards: Best Female Live Act.
Eins mun stíga á stokk, Steve Patterson sem stýrir þættinum The Debaters á CBC Radio – en hann hefur túrað um allan heim – og bætir nú Íslandi í hópinn.
Kynnir kvöldsins er kanadískt fósturbarn þjóðarinnar York Underwood – en hann fékk verðlaun fyrir besta búninginn í Space Camp árið 1997.
Aðgangseyrir er 3.500 kr. en nánar má nálgast upplýsingar um viðburðinn á Facebook-síðu hans HÉR