Flestir þekkja það þegar þreyta og syfja herjar á yfir daginn – en það eru til nokkrar sniðugar náttúrulegar leiðir til að koma í veg fyrir það.
Hér eru 12 ráð frá nokkrum atvinnumönnum í heilsugeiranum um hvað er sniðugt að gera til að viðhalda fullri orku.
Beina- og liðskekkjufræðingur (osteopathy) – Antonia Cook
1. Maca duft: Duft frá öflugum perúskum berjum sem eru full af B vítamíni, full af næringu – og hefur góð náttúruleg áhrif á skapið. Gott að bæta einni teskeið við boostið á morgnanna.
2. Dökkt súkkulaði: Súkkulaði sem er 70% eða meira er mjög örvandi, fullt af andoxunarefnum og bætir skapið náttúrulega.
3. Engiferte: Heitt engifer-te getur komið í staðinn fyrir kaffi – sem frábær uppistaða orku.
4. Öndun: Að anda reglulega djúpt eykur súrefnisflæði. Gott að telja upp á fjóra í innöndun og sex í útöndun.
LÆKNIRINN – Deyo Famuboni
5. Tækni-stopp: Að hætta að horfa á skjái eftir klukkan níu á kvöldin, það á við um síma, iPad, tölvu- og sjónvarpsskjái. Ljósið hefur áhrif á hormónin sem eiga að vera við lýði þegar myrkrið fellur að.
6. Ekki drekka neitt nokkra tíma fyrir svefninn: Að vera með fulla blöðru af vökva getur truflað svefninn.
MARKÞJÁLFINN – Jo Davidson
7. Notaðu morguninn: Til að halda uppi orku, þá fer ég á fætur 90 mínútur áður en ég þarf að fara út. Á þeim tíma geri ég stífar æfingar, hlusta á hressandi tónlist og öflugar hvatningarræður.
8. Hugleiddu: Það er gott að taka tíma til að hugleiða um morguninn. Þannig næst einbeiting til að vinna að skýrum markmiðum yfir daginn.
9. Matar- og orkudagbók: Að para saman mat og orku er frábær leið til að fatta hvaða matur hefur góð – og slæm áhrif á þig.
NÆRINGAFRÆÐINGURINN – Charlotte Watts
10. Sjáðu fyrir þér dagsbirtu: Að ímynda sér dagsbirtu hefur þau áhrif að vekja upp heilann – því það hefur sömu áhrif og að sjá raunverulega birtu.
11. Leggstu niður í sofa: Að leggjast niður í smá stund getur gefið taugakerfinu akkúrat þá litlu hvíld sem þarf til að hressast við.
12. Kitlaðu efri góminn með tungunni: Að kitla efri góminn með tungubroddinum – það hefur áhrif á taugar sem leiða upp í heilann.