Auglýsing

14 sálfræðilegar staðreyndir sem munu breyta lífi þínu til hins betra!

Heilinn er skrýtið fyrirbæri og sálarlífið okkar líka.

Hér eru skemmtilegar sálfræðilegar staðreyndir sem teknar eru úr hinum ýmsu rannsóknum og voru upprunalega birtar á síðunni higherperspectives.com.

1. Uppáhaldslagið þitt er mjög líklega tengt einhverjum tilfinningalegum atburði í lífi þínu.

2. Tónlist hefur áhrif á viðhorf þitt til þess sem þú ert að gera. Það er þessvegna sniðugt að hlusta á „peppaða“ tónlist þegar þú ert að vinna verkefni eða í ræktinni t.d.

3. Því meira sem þú eyðir af tíma þínum eða peningum í aðra því betur líður þér.

4. Það borgar sig þegar upp er staðið, fyrir andlega heilsu, að eyða peningum í lífreynslu frekar en hluti!

5. Krakkar í dag eru stressaðri en meðal geðspítalasjúklingur árið 1950. – Helmingur mannkyns í dag þjáist af kvíða, þunglyndi eða einhverskonar fíkn.

6. Sum trúarbrögð draga úr stressi – rannsóknir hafa sýnt að fólk sem hugleiðir eða biður bænir er yfirleitt minna stressað en annað fólk.

7. Peningar geta keypt haminguna. En bara upp að ákveðnu marki. – Rannsóknir hafa sýnt að hamingjusamasta fólkið fær nægar tekjur til að lifa yfir fátæktarmörkum.

8. Að vera innan um hamingjusamt fólk gerir þig hamingjusamari. – Segir sig nokkurnveginn sjálft er það ekki..

9. Fólk á aldrinum 18-33 er stressaðasta fólkið á plánetunni samkvæmt rannsóknum.

10. Að sannfæra sjálfan sig um að þú hafir sofið vel getur blekkt heilann í þér til að trúa því!

11. Greint fólk efast um sjálft sig og illa upplýst fólk er sannfært um að það sé snillingar. – Þetta er kallað The Dunning Kruger Effect. Farðu bara á Facebook, þú sérð þetta þar.

12. Þegar þú rifjar upp gamla minningu þá ertu í raun og veru bara að muna þegar þú manst hana síðast! – Þessvegna eiga þær það til að „blörrast“ og breytast með tímanum.

13. Ákvarðanir þínar eru rökréttari þegar þú hugsar á öðru tungumáli en móðurmáli þínu.

14. Þegar þú segir fólki frá markmiðum þínum ertu mun líklegri til að ná þeim!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing