Hin 17 ára Natalia Castellar var lögð í einelti af skólafélögum sínum þegar hún var ung. Ástæðan? Hún þótti með svo þykkar augabrúnir.
Það breyttist hinvegar þegar hún landaði samning sem módel.
„Eina sem fólk benti á áður voru augabrúnir mínar og gerðu grín að mér fyrir þær. Ég íhugaði að raka þær.“
Natalia landaði svo samning við Next – og segist hafa breytt viðhorfi sínu.
„Nú er ég bara ánægð með sjálfa mig – sama hvernig augabrúnir mínar líta út.“
Glæsileg stúlka.