Auglýsing

19 gullkorn úr ÍSLENSKUM minningargreinum munu láta þig hlæja!

Minningargreinar eru oft frekar hátíðlegar og alvarlegar – en stundum hittir þar á eitthvað sem er bara of fjári fyndið. Stundum óvart og stundum ekki.

Hér eru

“Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar”.

“Hún hafði það sterka skapgerð að smá rigningarsuddi setti hana ekki úrjafnvægi”.

“Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní”.

“Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag”.

“Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maðurí lúðrasveitum”.

“Hann skrapp úr vinnunni til að fara í þrekpróf hjá Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík”.

“Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstaðdendum skaðann”.

“Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna”.

“þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinni fingur”.

“Helga lést þennan dag kl 16. Helga hafði ætlað að eyða deginum í annað”.

“Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim”.

“Og má segja að hún setti ekki svo skál af tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi”.

“Orð þessi eru skrifuð til að bera Sveini (þeim látna) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans þótt nú nálgist 20.árið frá fráfalli hennar”.

“Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn”.

“Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs”.

“Á þessum fjölbreyta lífstíl sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. Indjánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að minna eða meira leyti, einkum ensku og norðurlandamálin.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing