Bleikur október er genginn í garð og Í ár er safnað fyrir ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins til að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf til einstaklinga sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Með Orkulykli Bleiku Slaufunnar styrkir þú baráttuna gegn krabbameini konum allt árið, auk þess að fá afslátt af eldsneyti hjá Orkunni og Skeljungi.
Orkan hefur verið dyggur stuðningsaðili Bleiku slaufunnar um árabil og allir þeir sem eru með Orkulykil Bleiku slaufunnar safna fyrir þetta mikilvæga málefni allan ársins hring. Í október gerir Orkan svo enn betur og hækkar styrktarupphæðina af hverjum seldum eldsneytislítra í 2 kr. Þessa má geta að það er Orkan sem leggur til styrktarupphæðina en ekki viðskiptavinurinn, hann fær hinsvegar afslátt af eldsneyti og glæsilegan Orkulykillykil merktan Bleiku slaufunni. Hægt er að sækja um lykilinn á www.orkan.is/bleikaslaufan
Nokkrar velvaldar Orkustöðvar verða upplýstar með bleikum ljósum í október.