Þar sem að allur heimurinn er annað hvort búinn að vera í samkomubanni eða sóttkví undanfarið, þá er ansi mikið um heimsendingar hvar sem að maður er staddur í heiminum.
Hún Naomi, eða @khaleesi_101 á Twitter, ákvað að deila kartöfluskrímslinu sem að hún fékk heimsent í færslunni hér fyrir neðan – enda hafði hún aldrei séð svona sætkartöflu áður á ævinni.
Í kjölfarið á færslunni hennar Naomi þá byrjaði fjöldinn allur af fólk að deila skrítnu matarheimsendingunum sínum.
Hér eru skrítnustu matarheimsendingarnar sem fólk deildi – og þess má geta að sumt þetta fólk virðist vera á því að Kórónaveiran sé líka farin að stökkbreyta matnum þeirra …