Hvort sem það er rómantísk bíómynd eða dramatískur sjónvarpsþáttur þá er alltaf einhver sem veltir því fyrir sér: „Er þetta sönn ást?“
Svarið verður yfirleitt á einn eða annan hátt „Þú veist það þegar þar að kemur…“ eða eitthvað í þá áttina. Málið er bara að hlutirnir eru aldrei svo einfaldir, nema auðvitað þú sért forsjár eða búir yfir miðilshæfileikum.
Í raunverulegu lífi nær það mun dýpra að ætla finna manneskjuna sem þú ert tilbúin/n að eyða ævinni með. Því miður er ekki til nein töfraformúla sem segir þér með hverjum þú ættir að eyða restinni af ævinni – en ef allir 24 punktarnir hér fyrir neðan passa við þá manneskju sem þú ert skotin í þá veistu að þú ert búin/n að finna manneskju sem er þess virði að halda í að minnsta kosti.
Þessi manneskja…
1. Kemur þér á óvart einungis til að sjá þig brosa
2. Hlustar á þig þegar þú talar
3. Þú saknar hennar þegar hún er í burtu
4. En þú bíður eftir henni sama hvað
5. Þú getur ímyndað þér að vera aðeins með henni það sem eftir er
6. Er alltaf hreinskilin við þig og væntir þess sama af þér
7. Þú vilt eyða mestum þínum tíma með henni
8. Þið lítið á hvort annað sem bestu vini
9. Þið eigið sameiginleg áhugamál og markmið
10. Þið kennið hvort öðru samt líka nýja hluti
11. Vill það besta fyrir þig
12. Kann að koma þér í betra skap
13. Hjálpar þér þegar þú þarft á því að halda
14. Hrósar þér
15. Kemur oftast vel saman við fjölskylduna þína
16. Þið standið við loforð sem þið gefið hvort öðru
17. Vinum þínum líkar við hana
18. Þið takið eftir öllum kækjunum hjá hvort öðru
19. Þið segið ekki ljót eða móðgandi orð við hvort annað
20. Talar aldrei illa um það ef þú lítur illa út
21. Þegar þið rífist uppnefnið þið ekki hvort annað
22. Getur látið þig brosa með því einu að horfa á þig…
23. …og komið þér í gírinn
24. Getur gert erfiðan dag að góðum degi með því einu að spjalla við þig um hann
BÓNUS: Varstu að hugsa um einhverja ákveðna manneskju á meðan þú last textann?