Þeir sem eru miðaldra hafa líklega aldrei heyrt um stjörnurnar á þessum lista. Samt eru þessi andlit svo vinsæl hjá ungu fólki að þau fá hundruðir milljóna í auglýsingatekjur á árinu.
TikTok er í tísku og á meðan þessir 7 notendur halda athygli fólks þá fá þau greitt fyrir styrktarsamninga, auglýsingar og jafnvel bara fyrir að minnast á ákveðna vöru.
Charli D’Amelio tekur um 100þús dollara (14 milljónir króna) fyrir að deila einum einstökum pósti sem minnist á ákveðna vöru. Charli er með 85 milljón fylgjendur á TikTok og því fá auglýsendur líka eitthvað fyrir sinn snúð.