Það er engin tilfinning sem jafnast á við þá sem þú finnur fyrir daginn eftir klippingu! Vinir, samstarfsmenn og skólafélagar flykkjast að þér til að hrósa og snerta!
Ef þú þráir þessa tilfinningu en átt ekki efni á því að fara í klippingu erum við með 9 frábær ráð fyrir þig – Ráð sem munu plata annað fólk til að halda að þú sért nýklippt/ur.
#1. Litaðu neðri partinn af hárinu þínu í sama lit og veggirnir!
#2. Taktu hárið saman og troddu því ofan í kragann á peysunni þinni.
#3. Settu derhúfu á þig sem er 2 númerum stærri en þú notar venjulega
#4. Stráðu hári á axlirnar þínar, niður bakið og helst yfir allan líkamann.#5. Teipaðu hárið þitt undir stóru heyrnatólin þín…. (Þetta er vont)
#6. Settu hárið í snúð ofaná höfðinu og feikaði svo „Rottu teboð“ ofan á honum!
#7. Talaðu um það hvað hársnyrtirinn þinn sé líkur blöndu af Shakiru og Paul McCartney
#8. Settu fullt af laufblöðum í hárið á þér, gaktu niður Laugarveginn og öskraðu ,,AUÐVITAÐ GERÐIST ÞETTA Í DAG! NÝJA KLIPPINGIN MÍN ER ÓNÝT!“
#9. Rífðu hárið af þér! (Þetta er mjög vont)
Jæja vonandi fannst ykkur þetta gagnlegt og þið fáið þá athygli sem ykkur dreymir um.