Nú nálgast Konudagur – og er ekki úr vegi að gleðja konuna í lífinu þínu af því tilefni.
Til þess að fá góð ráð þá leituðum við ráða hjá Gyðu Dröfn – lífstílsbloggara.
Hér er það sem hún segir:
Í tilefni þess að Konudagurinn er á sunnudaginn og kannski einhverjir menn sem vilja gleðja dömurnar sínar með fallegum mjúkum pakka. Fyrir utan það finnst mér þessar flíkur allar mjög fallegar og þær eru klárlega á mínum óskalista! Vörurnar mæta í Vero Moda í dag og á morgun, og ég mæli með að hafa hraðar hendur ef ykkur langar í eitthvað á þessum lista!
New Station regnkápa: Ég er svo ótrúlega hrifin af þessari fallegu regnkápu, en ég á einmitt eina mjög svipaða úr Vero Moda í sama græna lit sem ég keypti í fyrra. Ég hef verið mikið spurð út í hana þegar ég er í henni og því kæmi mér ekkert á óvart að þessi yrði vinsæl!
Elly blúndukjóll: Blúndukjólar hafa verið virkilega vinsælir sem innanundirflíkur seinustu mánuði, og að mínu mati þurfa allar dömur að eiga allavega einn. Þessi þykir mér sérstaklega fallegur – mæli 100% með! Fyrir þá sem vilja spara sér sporin fæst þessi líka á Bestseller.is.
Lesca æfingabolur: Ótrúlega sætur æfingabolur! Ég veit að margar skvísur elska boli með þessu sniði í ræktina, en ég á einmitt nokkra svipaða inn í skáp hjá mér. Verandi forfallinn kaffisjúklingur þyrfti ég endilega líka að fá mér þennan!
Mercy taska: Þessi taska finnst mér ótrúlega flott, og svo er hún líka stór og rúmgóð fyrir þá sem eru alltaf eins og þeir séu að fara að flytja þegar þeir fara út úr húsi.
Miranda rúllukragapeysa: Yfir mig ástfangin af þessari! Ég hlakka til að fara og næla mér í þessa á morgun en ég á aldrei nóg af kósý peysum. Elska munstrið og litinn á þessari en hún kemur líka í svörtu.
Verslanir Vero Moda eru í Kringlunni og Smáralind – en vörur þeirra má líka nálgast á bestseller.is