Það er sjaldan dauð stund á Hamborgarafabrikkunni og verður kvöldið í kvöld engin undantekning! Hinn ungi og efnilegi tónlistarmaður Aron Brink mun koma fram á Hamborgarafabrikkunni Höfðatorgi fimmtudaginn 9. mars klukkan 19:30. Aron mun að sjálfsögðu flytja lagið Þú hefur dáleitt mig sem er eitt þeirra laga sem keppir í forkeppninni fyrir Eurovision næstkomandi laugardag!
Til þess að gera gott kvöld enn betra er heiðursborgari vikunnar Neyðarlínan og fæst með 500 kr. afslætti þessa vikuna! Hún er ekki fyrir viðkvæma. Neyðarlínan skartar meðal annars pepperóní og jalapenjó-chilipiparmauki. Tabasco sósa fylgir með til hliðar og svo er Neyðarlínan einnig fáanleg í vegan útgáfu!