Booztbarinn hefur rutt sér til rúms og er sívinsæll hjá þeim sem vilja grípa sér fljótlega og holla næringu í dagsins önn. Booztbarinn er hinn fullkomni morgunmatur, hádegismatur, millimál og jafnvel kvöldmatur.
Á booztbarnum getur þú fengið ótrúlega fjölbreytt úrval af booztum, söfum, hollustu skotum og það nýjasta – orkuskálum.
Hægt er að velja um þrenns konar orkuskálar:
Acai Ofurberja
Mangó & Ferskju
Jarðarberja & Hnetusmjör
Þú velur Orkuskálina með Skyri eða Vegan Þ.e .Möndlu -Kókos -Rís eða Soyamjólk) og svo er skálin toppuð með ljúffengum ferskum jarðaberjum, bláberjum, bönunum og granola.
Okkar uppáhalds skál er Acaii ofurberja skálin. Hver er þín uppáhalds?