Systurnar Asel og Kamila Kalaganova eru báðar albínóar, en það eru 12 ár á milli þeirra.
Nýlega fóru þær í myndatöku sem fjölskylda þeirra deildi á samfélagsmiðlum og myndirnar fóru um netið eins og eldur í sinu – og þrátt fyrir að allir í fjölskyldunni hafi verið sammála um að stelpurnar hafi verið einstaklega fallegar á myndunum þá datt þeim ekki í hug að myndirnar yrðu víral.
Þær systurnar hafa heillað heiminn – og munu að öllum líkindum heilla þig líka með fegurð sinni: