Samkvæmt rannsókn sem birt var á www.ons.gov.uk kemur í ljós að aldurinn sem fólk er hvað ánægðast á lífsleiðinni er ef til vill ekki sá sem flestir myndu halda.
Eftir að hafa skoðað gögn frá 300.000 einstaklingum yfir 3 ára tímabil þá er fólk hamingjusamast á bilinu 65 til 79 ára.
Þannig að þó maður geti verið við hestaheilsu á tvítugsaldri – þá gefur rannsóknin til kynna að mestu hamingjuna sé að finna mörgum áratugum síðar.
Þess má þó geta að minnst hamingjusamasta fólkið var á aldrinum 45 til 59 ára – þannig þetta gæti orðið aðeins verra áður en það verður betra.
Annars lifir maður víst bara einn dag í einu …