Afmælisveisla Tölvuteks hefst laugardaginn 2. september kl 12 í Hallarmúlanum en versluninn vill þakka fyrir stórkostlegar móttökur á afmælisveislu sinni þennan sama dag í fyrra þegar þúsundir manns mættu á afmælisveisluna og tóku þátt í einstökum viðburði sem verður reynt að endurtaka í ár. Það ættu sem flestir að láta sjá sig og gæða sér á kræsingum, skemmtiatriðum og ótrúlegum afmælistilboðum.
Hinn íslenski Svarthöfði mætir í fullum skrúða og setur afmælishátíðina klukkan 12 með Star Wars tónleikum Lúðrasveitarinnar Svans. Það verða 5.000 kleinuhringir frá Don´s Donuts í boði, frítt meðan birgðir endast auk CandyFloss og Karnival Popps. Fyrstu 100 viðskiptavinirnir fá veglegan gjafapoka. Stjörnumyndataka með Svarthöfða, Loga Geimgengil og Lilju prinsessu, verðlaun í boði fyrir alla stjörnuglaða meðan birgðir endast. Angry Birds RISA rennibraut frá Skátalandi fyrir alla krakka og full búð af nýjum vörum og ótrúlegum tilboðum meðal annars allt að 75% afsláttur af yfir 1000 vörum og allt að 70 þúsund krónu afsláttur af fartölvum en hátíðin stendur frá 12 til 18. Að lokum verða á afmælistilboði 500.stk. af Collectors Edition Star Wars Drónum með möguleika á 100 milljóna verðlaunafé í keppnisleik!
Í tilefni afmælisins verður forskot tekið á sæluna með afmælistilboðum í Tölvutek föstudaginn 1. september milli 12-18 og halda þau áfram alla helgina frá 12-18.
Hér má sjá myndband frá afmælinu í fyrra: