Anderson Silva sem er einn besti bardagamaður allra tíma sigraði Derek Brunson um helgina. Þó að það voru ekki allir sammála um dóminn þá fékk fyrrverandi meistarinn einn sigur í viðbót á ferilskránna.
Anderson var búinn að eiga það frekar erfitt eftir að hann glataði titlinum árið 2013. Þessi sigur skipti hann miklu máli og það sést hérna í viðtalinu sem Joe Rogan tók við Anderson strax eftir bardagann.