Það getur verið vandlifað að keyra götur Reykjavíkur, það fékk Aron Tómas að reyna.
Hann var að keyra niðri í bæ og var stoppaður af löggunni sem taldi hann fullan undir stýri – út af aksturslagi hans.
Ástæðan var þó allt önnur – hann var alveg allsgáður – og bara að reyna að passa sig á öllum þessum holum sem göturnar skarta!