Inn á heimasíðu Embætti landlæknis er að finna greinina hér fyrir neðan, þar sem þau tilkynna að annar einstaklingur hafi greinst með mislinga á Íslandi – og í þetta sinn er það 11 mánaða gamalt barn.
Landlæknir útskýrir aðeins aðstæðurnar í greininni og minnir svo á að mislingar eru með mest smitandi sjúkdómum sem þekkjast.
Annar einstaklingur greinist með mislinga á Íslandi
Þann 2. mars síðastliðinn greindist tæplega 11 mánaða gamalt barn með mislinga á Íslandi. Barnið sem var óbólusett, var í sama flugi og einstaklingur með smitandi mislinga þann 15.2.2019, sjá frétt af vef Embættis landlæknis frá 19.02.2019.
Barnið var lagt inn á Barnaspítala Hringsins þann 1. mars sl. og heilsast vel eftir atvikum. Líkur á frekara smiti frá barninu er ólíklegt en einstaklingar í nánasta umhverfi barnsins eru bólusettir gegn mislingum.
Á þessari stundu er ekki vitað um fleiri smitaða einstaklinga en mögulega má búast við smiti fram til 7. mars en þá eru 3 vikur liðnar frá því að einstaklingurinn með mislinga í fyrrgreindri frétt var á ferðalagi bæði erlendis og hér innanlands.
Rétt er að minna á að mislingar eru með mest smitandi sjúkdómum sem þekkjast. Engin meðferð er til við sjúkdómnum og eina fyrirbyggjandi meðferðin felst í bólusetningu sem veitir meira en 95% vörn. Þetta minnir á mikilvægi þess að halda hér uppi góðri þátttöku í bólusetningum.
Bólusetning gegn mislingum er við 18 mánaða og 12 ára aldur. Hægt er að bólusetja börn frá 6 mánaða aldri en vörn bólusetningarinnar er óviss á aldrinum 6−12 mánaða. Litlar líkur eru á vernd ef bólusett er fyrir 6 mánaða aldur.
Sóttvarnalæknir