Hún Begga er komin með myndir af einstaklingnum sem stal vespu bróður hennar fyrir utan Árbæjarskóla.
Hún biður okkur sem erum á Facebook um að hjálpa sér að finna viðkomandi:
Sælir kæru nágrannar! Mig langar að byrja á því að þakka ykkur öllum innilega fyrir að deila færslunni sem ég setti inn í síðustu viku varðandi vespu bróður míns sem stolið var fyrir utan Árbæjarskóla. Þökk sé ykkur öllum fundust 3 stolnar vespur og eru þær komnar til síns heima, en því miður ekki vespa bróður míns. Í dag fengum við hinsvegar sendar myndir af einstaklingnum sem stal vespunni og mig langaði að deila þeim með ykkur. Því miður sést ekkert í andlitið á honum þar sem hann var með derhúfu og hettu yfir allan tímann. Ef þið kannist eitthvað við fatnaðinn eða þá sérstaklega töskuna þá yrðum við afar þakklát ef þið gætuð hjálpað okkur. Það má endilega deila!
S: 774-5570