Við búum á mjög fallegu landi og þess vegna skiptir rosalegu máli að við pössum vel upp á það og hjálpumst að við að halda því hreinu. Við höfum öll orðið vitni af því að einhver hendi einhverju út úr bílnum sínum þegar hann/hún er að keyra um landið.
Berglind varð vitni af svoleiðis en ákvað að gera eitthvað í málinu. Hún setti þessa auglýsingu á Facebook ásamt mynd af bílnum.
„Fallegur vor morgun á leið í sveitina okkar og ökum í gegnum Borgarnes á eftir bifreiðinni VI H67 – farþegi þeirrar bifreiðar missti ruslið sitt út um gluggann -ef þið rekist á viðkomandi viljið þið góðfúslega segja honum að það liggi í vegkantinum rétt áður en komið er að Húsasmiðjunni í Borgarnesi #götureruekkiruslafötur#göngumvelumlandiðokkar #virðing “. – Berglind