Það er ekkert leyndarmál að Bandaríkjamenn vita lítið sem ekkert um knattspyrnu.
Þessi vandræðalegi fréttamaður, Derek Henkle, ætlaði að spurja Bastian Schweinsteiger hvort hann sæi ekki greiða leið á HM eftir að hann byrjaði að spila fyrir Chicago Fire.
Svo sem ekkert að þeirri spurningu, nema að Chicago Fire er bara félagslið en ekki landslið. En við skulum ekkert láta það stoppa okkur, dreyma stórt!
American Journalist + „Soccer“ + Bastian Schweinsteiger press conference = Awkward. pic.twitter.com/oFLHwiyPp3
— Paddy Power (@paddypower) March 30, 2017
My apologies to soccer fans! pic.twitter.com/ODbmxS0qMf
— Derek Henkle (@derekhenkle) March 31, 2017
Bastian botnar ekkert í honum en nú er hann allavega búinn að biðjast afsökunar og við fyrirgefum honum auðvitað klaufaskapinn!
Það þarf alvöru menn til að viðurkenna mistök sín!