Robb Hartlen er sérstaklega hrifinn af uppátækjum mömmu sinnar sem hefur alltaf verið svolítið annars hugar.
Sjaldan hefur hann þó hlegið jafn innilega og þegar hann keyrði mömmu sína út í búð og beið fyrir utan. Þegar hún sneri aftur þá fór hún inn í annan svipaðan bíl án þess að gera sér grein fyrir því.
Sonurinn ákvað að láta ekki vita heldur tók myndband af mömmu sinni og beið í hláturskasti eftir rétta eigandanum. Þetta þótti honum svolítið mikið fyndið – og reynið bara að hlæja ekki með honum: