Það er magnað hvað sumt fólk er ótrúlegt og lætur ekkert stoppa sig.
Dan Mancina er búinn að vekja heimsathygli þar sem að hann er blindur, en alveg fáranlega góður á hjólabretti!
Það eru til mörg myndbönd sem sýna snilldina hans Dan en þetta er það besta. Myndbandið er stutt, hnitmiðað og kemur með ein mikilvægustu skilaboðin hans: „Ekki ofvernda börnin ykkar!“
Ef þið viljið fylgjast með Dan þá er hann @danthemancina á Instagram.