Auglýsing

BRAD PITT og ný kærasta „hann er leiðinlega fyrirsjáanlegur“ – skilnaður Pitt og Jolie í hart! – Myndir!

Skilnaður Angelinu Jolie og Brad Pitt virðist ekki ætla að ganga áfallalaust miðað við nýjustu fréttir.

Heimildamaður úr innsta hring hjónanna segir þetta útspil Brad Pitt alveg glatað. „Hann er svo leiðinlega fyrirsjáanlegur – skilur við konuna til að haga sér eins og unglingur með yngri konu sem starfar sem módel.“

Myndir af Pitt og nýju kærustunni á ferðalagi um Frakkland voru áberandi á öllum slúðursíðum. Þau sáust kyssast á almannafæri í París og voru sögð haga sér eins og ástfangnir unglingar. Nicole Poturalski er frá Þýskalandi, er talin vera 26 ára og á son með fyrrum kærasta sínum.

 

Þó það sé 30 ára aldursmunur á Pitt og Nicole þá virðast þau eiga vel saman. Sumir hafa bent á að Nicole er alls ekkert ólík Jolie sjálfri í útliti þó hún sé töluvert yngri.  Hann sé því bara að yngja upp vegna miðaldrakrísu sem þykir léleg framkoma við Jolie.  En ástin spyr ekki um aldur svo við óskum öllum velfarnaðar.

Jolie hefur sett aukna hörku í skilnaðinn undanfarið og hefur viljað láta dómarann í málinu stíga til hliðar. Brad Pitt hefur sagt þetta einungis gert til að tefja fyrir og koma einhverju höggi á hann með því að draga málið út í hið óendanlega.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing