Okkur er ánægja að fleyta áfram þessum skilaboðum frá vinum okkar í Borg Brugghúsi.
Kæru vinir. Eins og þið þekkið erum við sífellt að þróa hin ýmsu smáatriði í bjórgerð okkar, með útgáfu tilraunabjóra í litlu magni, árstíðarbundinna bjóra og bjóra sem við töppum beint í ræsið, þar sem þeir eiga heima. Við erum svo reglulega en örugglega að þróa heilsársbjórana þessu samhliða þar sem við trúum ekki á fullkomnun í þessum efnum.
Brakandi fersk Úlfrún er nú að lenda í allskonar hillum. Hún er að þessu sinni mun skýjaðari en undanfarna mánuði. Hún á sem sagt að vera svona. Ferskari og meira djúsí. Ekki láta ykkur bregða. Skál.