Það eru mismunandi hlutir sem koma fólki af stað í átt til heilbrigðara lífs. Hinn 28 ára gamli Sebastian Bach borðaði ruslmat og var með bumbu – en eftir að pabbi hans dó kveikti það tíru í honum. Sebastian gaf upp sinn fyrri lífstíl – þar sem hann borðaði 5000 kalóríur á dag af ruslfæði.
Hann tók upp strangt mataræði – skóf af sér bumbuna og skyndilega var hann beðinn um að vera módel.
„Það er í raun blessun fyrir mig að hafa fitnað svona – því þá fann ég botn sem ég gat notað til að komast á þann stað sem ég er í dag.“
Umbreyting Sebastian tók aðeins 15 mánuði – og nú getur hann ekki hugsað sér að fara til baka í gamla lífsstílinn.