Auglýsing

Búið að RÚSTA bíl fyrir aftan Fellaskóla – Ástandið á honum er algjör slysahætta! – MYNDIR

Þessar myndir voru teknar af bíl sem er fyrir aftan íþróttahús Fellaskóla og það er ekki fögur sjón að sjá bílinn.

Dekkin eru farin, númeraplatan horfin og búið að mölva afturrúðuna. Brotna glerið er á götunni og gluggakarmurinn er enn með gleri sem forvitnir einstaklingar geta skorið sig á.

Íbúar eru búnir að láta lögregluna vita en eru ekki sáttir við svarið frá þeim:
„Sæl Kristín
Mér sýnist að borgin sé búin að setja tilkynningu á þetta hræ. Bifreiðin verður fjarlægð innan tíðar af borginni.
Kv
SA“

Þar sem að bíllinn er slysahætta þá vilja þau að sjálfsögðu losna við bílinn strax – sama daginn og þau tilkynntu það. En sú er ekki raunin.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing