Fyrir 30 árum síðan þá kom ljósmyndarinn Ryan Weiderman til New York með stóra drauma um að meika það í sínu fagi.
En það þurfti að borga reikningana og myndatökur voru engan veginn að ná að dekka það.
Svo Ryan fór að keyra leigubíl til að eiga í sig og á – en hann gleymdi ekki ástríðu sinni og byrjaði að taka myndir af farþegum sínum.
Öllum þessum árum síðar þá kallar fólk leigubílinn hans ljósmyndastúdíó og hann er virtur fyrir að hafa ekki gefist upp á draumum sínum.