Caitlyn Jenner hefur ekki viljað tjá sig um hjónaband sitt við Kris (Kardashian) Jenner, börnin eða raunveruleikaþættina frægu. Ástæðan er stuðningsleysi fjölskyldunnar þegar Caitlyn sem áður hét Bruce Jenner fór í kynskiptiaðgerð. Í kjölfar aðgerðarinnar sagði hún sína sögu og var eiginkonan fyrrverandi (Kris Jenner) ekki sátt við frásögn hennar Caitlyn.
Nú er lítið samband milli Kardashian-Jenner fjölskyldunnar og Caitlyn en það lagast vonandi áður en langt um líður. Þ:að er því sjaldgæft að heyra Caitlyn tjá sig um þessi mál en áströlskum morgunþætti tókst að fá hana í viðtal.
Hún segir meðal annars frá því að henni var aldrei sagt að KUWTK þættirnir væru að hætta enda ekki inni í neinum málum lengur.