Undanfarið hefur byltingar bylgja farið um samfélagsmiðla þar sem konur (og karla) hafa stígið fram og opnað sig um kynferðislegt ofbeldi sem þau hafa orðið fyrir.
Rithöfundurinn Heather Ross er ein þeirra sem steig fram. Heather sagði í útvarpsviðtal hjá Morning Mix 94.9 að hún hafi orðið fyrir kynferðislegu áreiti af hendi annars kvikmyndaframleiðanda. Á þeim tíma hafði hún sagt vinkonu sinni Carrie Fisher frá atvikinu en sú tók málin í sínar hendur!
Carrie Fisher fór til hans með „sendingu“ sem hún hafði útbúið sjálf. Þetta var fallegur stór Tiffany’s kassi með stórum hvítum borða og slaufu – en inní kassanum var nautatunga!
Með pakkanum fylgdi kort með sem á stóð “ Ef þú snertir hana Heather mína aftur eða einhverja aðra konu verður næsta sending eitthvað sem þú átt nema í miklu minni kassa!“
Þetta kallar maður grjóthart!