Á laugardaginn keppir Conor McGregor við Floyd Mayweather í boxi. Conor er búinn að fá aðstoð frá mörgum góðum boxurum og þar á meðal fyrrverandi heimsmeistaranum Paulie Malignaggi. Þeirra samstarf endaði ekki vel þar sem að Paulie hætti eftir að mynd lak á netið sem leit ekki vel út fyrir Paulie.
Í gær mættu Floyd og Conor á blaðamannafund og fyrir utan höllina rakst Conor á Paulie. Auðvitað endaði það í smá rifrildi. (Rifrildið byrjar á mínútu 1:50)