Kvikmyndin Dirty Dancing kom út árið 1987 og kom af stað dansæði um allan heim. Skiljanlega voru aðdáendur spenntir að læra dansana úr myndinni og sóttu mikið til danskennara.
Í myndinni eru ákveðin atriði sem gefa myndinni nafn eða Dirty Dancing þar sem dansarar hreyfa mjaðmir saman á sérstakan hátt. Leikararnir Patrick Swayze og Jennifer Grey létu þetta líta ágætlega út á stóra skjánum.
Eðlilega vildu margir stíga í spor Swayze og Grey en hér að neðan er myndband af danskennara að kynna þjónustu sína. Hann setur allan sinn kraft í að gera þetta á meistaralegan hátt en eftir því sem myndbandið eldist – því furðulegra verður það. Það er erfitt að hugsa sér að danskennarar myndu leggja þetta á sig eða setja sig í svona aðstæður í dag.
Myndbandið er að slá í gegn á internetinu eftir að Found Footage heimasíðan gróf þetta upp. Það vantar heimildir fyrir gerð myndbandsins en meirihluti fólks segir þetta vera ekta myndband – eða sé alla vega alveg eins og danskennslan var á þessum tíma.